Jazzklúbburinn Múlinn er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á helsta jazzgeggjara þjóðarinnar, Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Dagskrá Múlans er að vanda metnaðarfull og fjölbreytt. Hún er gott dæmi um þá miklu grósku sem einkennir íslenskt jazzlíf. Á Múlanum er pláss fyrir allar stefnur og strauma innan jazzins. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Tónlistarsjóði og Menningarsjóði FÍH. Hafa samband: mulinn.jazzklubbur@gmail.com